Ostrur....Kveikja blossann

Smútsí smútsí

13.04.2008 11:59:56 / johanna

MYNDIR!!!

Heyrðu! nú er mín heldur betur búin að vera dugleg!!!
Þannig er nefnilega mál með vexti að tölvan mín (þ.e.a.s. harði diskurinn) dó!! En nú er ég búin að fá hana aftur úr viðgerð og búin að vera heillengi að vinna í að endurheimta myndirnar mínar....en margar af þeim eru því miður týndar :(

En nú þegar allt er komið í lag ákvað ég að henda inn um 5 mánaða gömlum skammti!!! Það eru myndir frá:

en við mæðgur, ég, Gígja og mamma fórum upp á Helgafell í geggjuðu veðri daginn eftir árshátíðina! Einstaklega hressandi! ;)

Nú ætti allavega að vera nóg af myndum fyrir ykkur að skoða börnin mín ef ykkur leiðist í próflestri eða veikindum eða öðru :)

Elska ykkur öll

    Ykkar, Jóhanna


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 12:12:52 / johanna

Jæja vinan....

.....loksins loksins skríð ég úr híði mínu....en nú er ég komin í aðeins meira afslappelsi í skólanum eftir að þetta blessaða próf er búið ;) Var í einstaklega skemmtilegum kúrs í janúar og byrjun febrúar sem kallast höfuð&háls en núna er ég búin að fá úr prófinu og þetta gekk allt saman vel :)



Síðan skrapp ég bara til London eftir prófið með mömmu og pabba og hafði það bara mjög huggulegt og verslaði mikið ;)

              

Nú er ég komin heim aftur og dreg það endalaust að byrja að læra aftur...held ég byrji samt á morgun ;) (búin að segja þetta í meira en viku ;)).
Annars vildi ég bara segja ykkur að ég er loksins að henda inn í tölvuna u.þ.b. 600 myndum allt frá í nóvember sem ég hef ekki nennt og ekki haft tíma til að setja inn, en þær koma á netið á næstu dögum ;)

   Njótið dagsins með bros á vör :)
          Knús, Jóhanna


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.02.2008 10:51:53 / johanna

Próf próf próf


  Anatomy is a language
  as dead as dead can be.
  It killed the ancient anatomists
  and now its killing me!

Ég veit ekki hver er höfundurinn en ég er svo hjartanlega sammála honum í augnablikinu!!!!

Bara 2 dagar eftir af lestri, svo er prófið á þriðjudaginn!!! Eftir það er það bara London baby! vúhú!! :D :D :D :D

Heyri í ykkur betur síðar, þarf að lesa meira um nefið og afholur nefs ;)

Knús, ykkar að eilífu ;)
Joe :*


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 09:12:11 / johanna

Nýtt blogg vúhú!

Jæja...vegna ómælanlegrar pressu frá Móu hef ég ákveðið að henda inn einu skemmtilegu bloggi hérna!

Þið eruð kannski að velta fyrir ykkur af hverju í ósköpunum ég er vakandi kl. 9 á sunnudagsmorgni....ég vildi að ég gæti sagt að það væri af því að ég hefði verið lengi á djamminu í gær, hent út af skemmtistöðunum kl. 7:30 farið á Nonna og komið mér heim....en neeeiii hemmi minn! Ég er að læra fyrir eldhresst og skemmtilegt anatómíu próf sem er á fimmtudaginn! Vúhú! stuð hér á bæ! En þetta er einmitt annað og síðasta prófið mitt og þá er ég komin í jólafrí!!! Vá hvað ég hlakka til! Þá fáið þið kannski fleiri blogg og ég þarf líka að henda inn myndum frá afmælinu/útskriftarpartýinu hennar Gígju sem var haldið á b5 og líka úr innflutningspartýinu hjá Svenna og Örnu, það var sko stuð á kellunni þá!!

Annars var ég að endurheimta fjölskylduna mína frá New York í gær, þau komu sólarhring of seint því það var svo mikið rok á keflavíkurflugvelli að það gátu engar vélar lent!!! 8| Ég var nú samt ekki lítið abbó að þau skildu vera að fara til NY og ég yrði að vera heima að læra, en glatað!!! En það verður bætt í febrúar en þá ætlum ég og mamma í vikustelpuferð þegar ég er búin með höfuð og háls(sem er víst killer! :S), það er ekki enn búið að ákveða áfangastað en það kemur allt í ljós!

Jæja, ég vona að þetta svali blogglestrarþörfinni hjá ykkur næstu dagana þangað til ég er búin í prófinu (þessu er aðallega beint til þín Móa ;)) þá lofa ég að koma með eitthvað smellið og skemmtilegt! :P

 KOssar og KNús

      Jóhanna í jólaskapi


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 12:22:37 / johanna

Nýjan spítala eða nýja verlsunarmiðstöð??

Já, þetta er góð spurning! Er veik heima og þess vegna er ég að horfa á hádegisfréttirnar og þar er aðalfréttin Lifandi miðborg, þ.e. nú á að byggja nýja verslunarmiðstöð á Barónsreitnum svokallaða... Þetta er svosem alveg gott og blessað, ekki misskilja mig, ég elska Laugaveginn og miðbæinn en það er leiðinlegt hvað hann hefur drabbast mikið niður...hver veit? Kannski er þetta góð leið til að lífga upp á miðborgina...

Það er semsagt ekki verslunarmiðstöðin sjálf sem er að angra mig heldur það að fram kom í fréttinni að ef samningar ná fram að ganga þá eru áætluð verklok haustið 2010! Það er eftir einungis 3 ár! Ég hef nefnilega undanfarið verið að skoða vefsíðu nýs HÁSKÓLASJÚKRAHÚSS sem mér finnst mjög spennandi þar sem ég vinn á núverandi spítala og líklega verður sá nýi starfsvettvangur minn í framtíðinni og það er alveg veruleg þörf á nýju og betra sjúkrahúsi, fyrir allar deildir... Anyways...þar stendur skv. tímaáætlun að fyrsta áfanga verði lokið 2013 en allt verður orðið tilbúið árið 2018! Það er eftir 11 ár! Vonandi verður þetta ekki orðið úrelt þegar þetta er loksins tilbúið!

Þannig að mér er spurn hvort er mikilvægara að klárist fyrst: verslunarmiðstöð í miðbænum eða nýtt sjúkrahús (sem er löngu orðið tímabært!)????? Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að það er flóknara að byggja spítalann en það þarf alveg örugglega ekki svona langan tíma...þetta snýst semsagt allt um peningana, ríkið á enga peninga en samsong enterprises eða hvað þeir nú heita eiga greinilega nóg til að láta fólk vinna hratt! Sem sýnir bara að sá sem á peningana hefur valdið! Þess vegna væri ég alveg til í að sjá einhvern af þessum ríku köllum landsins, sem eru á topp 10 listanum gefa smá pening til verkefnisins...þeir hafa alveg efni á því held ég fyrst þeir geta haldið afmælisveislur með Elton John eða 50 cent á Jamaica!!

Og hana nú!

Þá er ég búin að koma því frá mér...varð að tjá mig aðeins um þetta....kannski hef ég rangt fyrir mér en ég skil a.m.k. ekki af hverju þetta á að taka svona langan tíma! Ef einhver veit eitthvað um þetta þá endilega tjá sig!

Gott í bili....heyrumst elskurnar :lol:

Kv.Joe


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 12:19:17 / johanna

Myndir

Hæ kids!

Long time no see!! ég er orðin arfaslök í þessum bloggheimi....vildi samt láta ykkur vita að ég er að henda inn myndunum úr afmælinu hennar Ásu....GOOD TIMES hehe!!!!

Þær eru bara á myndasíðunni minni: http://picasaweb.google.com/joagulladottir

Tékk it!

Kveðja, Joe


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.08.2007 09:55:06 / johanna

Myndir!

Jæja...þetta er nú búið að taka helvíti langan tíma, en það hafðist...Er loksins búin að henda inn myndunum frá Danmörku og útilegunni við Arnarstapa, forritið sem ég nota til að setja myndirnar á netið er búið að vera eitthvað bilað, þannig að ég var í alveg nokkra daga að setja hvert albúm inn! :S

Kíkið á myndasíðuna

Síðan á ég líka eftir að setja inn myndirnar úr afmælinu hennar Ásu sem hún hélt hátíðlegt þann 21.júlí síðastliðinn og var það alveg snilldarteiti! Takk fyrir mig Ása mín, ég skemmti mér konunglega! Versta var kannski að ég mætti í vinnuna daginn eftir eins og hálfs tíma svefn! ÚFF! Geri það ekki aftur í bráð ;)

En nú er verslunarmannahelgin gengin í garð, og ég að vinna! Surprise surprise! ;) En hver veit nema maður kíki samt aðeins út annað kvöld ;)

Ykkar, Joe

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 16:30:25 / johanna

Just another manic monday...

 

           Hæ kids!

Enn og aftur kominn mánudagur eftir geðveika helgi! Fór í útilegu með Darra og Móu og Birki á föstudaginn og við komum í gær, vorum á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Ekkert smá fallegt þarna!!! Fórum í svaka fjallgöngu á laugardeginum í geggjuðu veðri og fórum síðan í sund... svo vorum við bara mest að slappa af og grilla góðan mat, drekka gott vín ;) og svona Mmm....

Svo er ég mætt í vinnuna núna, er á kvöldvakt sem þýðir að það er ekkert að gera hjá mér! En ég ætla að reyna að henda inn myndum, helst á morgun, allavega á miðvikudaginn. Ætla þá að setja inn myndirnar frá helginni og síðan líka myndir frá DK! Loksins! ;) Svo að Gígja sín geti kíkt á þær :)

 En eins og ég segi þá er maður alveg endurnærður eftir þessa helgi og það er alveg nauðsynlegt að skreppa svona útúr bænum þegar maður hefur tækifæri til! Ég vona að þið hafið átt eins góða helgi og ég! ;)

    Reyni að henda inn myndum soon ;)

            Síjú gæs! Joe


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 11:38:10 / johanna

Hæ kids!

 

  Jæja, þá er ég mætt aftur eftir langa bið...ég sé að það eru nokkrar hræður sem eru ennþá að kíkja hingað, og ég vona að fleiri fari að koma fyrst ég er byrjuð aftur.

Er í nýju vinnunni minni núna, búin að vera í viku og er nýbúin að læra á þetta allt. Þetta lítur allt vel út, hingað til allavega, það er bara svo hrikalega lítið að gera, sem er kannski ágætt því þá hef ég tíma til að blogga aðeins ;). Á ég þá ekki að koma með smá úttekt á því sem ég er búin að vera að gera síðan í apríl? Engar áhyggjur, það er nú ekki frá miklu að segja ;)

Þegar ég var búin með prófin í háskólanum, þann 4.maí, fór ég bara beint í lestur fyrir inntökuprófið, sem var 13. og 14. júní, þannig að ég er eiginlega bara nýkomin í sumarfrí! Fór síðan strax daginn eftir prófið, þann 15.júní til að heimsækja elsku Gígju mína og Darri fékk að fljóta með ;) Set inn myndir frá því fljótlega. Svo  þegar ég kom heim aftur fyrir viku síðan byrjaði ég bara strax í Bootcamp og að vinna. Verst bara að vera að vinna inni í svona hrikalega góðu veðri! Það er miklu betra veður hérna núna heldur en var úti í DK þegar ég var þar:!:

En jjæja....vinnan kallar

Kem aftur síðar, þá vonandi með myndir

Ciao! kv.Joe


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 20:04:21 / johanna

Dimissio

Jæja, Dimissio í gær, ég mætt á staðinn til að taka myndir og fékk alveg svakalega nostalgíu! Langaði eiginlega bara að vera með ;) En það er því að þakka að ég nenni ekki að læra að myndirnar eru komnar inn á síðuna mína. SMELLIÐ HÉR


Vallarnir voru vinsælir!

Gott í bili...læra læra

Bleble, kv.Joe

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 09:22:25 / johanna

ÚFF

 

Vá, það er eiginlega erfitt að láta sjá sig hérna! En eins og þið kannski hafið tekið eftir þá er ég ekki búin að vera dugleg að blogga, meira bara dugleg að læra eins og geðsjúklingur og vinna upp tap eftir endajaxlaaðgerð!! En þar sem ég held að það sé ekki heilbrigt að vera með nefið svona mikið ofan í bókunum þá ákvað ég að koma með eitt gott blogg hérna, og vonandi líður ekki mánuður þangað til næsta kemur! ;)

Ýmislegt að frétta hér á bæ...síðasta mánudag, semsagt fyrir rúmri viku síðan þá urðu KR Íslandsmeistarar í körfubolta!!! Til hamingju aftur strákar mínir! Þannig að það var endalaust djamm í síðustu viku... Eftir úrslitaleikinn var farið á Oliver (ég fór reyndar ekki með þangað, Darri var bara einn) en svo var ákveðið að halda aftur upp á þetta á miðvikudaginn, síðasta vetrardag og ákvað ég bara að skella mér með, og sennilega var þetta síðasta djammið sem ég tek þangað til í SUMAR!!!!! 

Hér er ein mynd sem ég fékk lánaða hjá www.kr.is/karfa 
Ungu pungs sveittir og sælir ;)
 
Annars er bara fyrsta prófið núna á laugardaginn og síðan seinasta prófið 4.maí, síðan tekur bara við maraþonlestur fyrir blessað inntökuprófið!!! VÚHÚ!! :D En síðan er ég búin að kaupa mér miða til Danmerkur og Darri líka þannig að við förum bara út strax daginn eftir inntökuprófið, svona aðeins til að pústa! Vá hvað ég hlakka til að fá að hitta Gígju sín!!! Svo verður væntanlega komið mjög gott veður þarna um miðjan júní og hægt að versla fullt af sumarfötum og bikiníum og alls konar!! Þetta verður PARADÍS!!! :D
 
En nú þarf ég að fara að rjúka, ætla að fara aðeins niðrí MR og fylgjast með Dimissio þannig að þið megið búast við öðru bloggi annað hvort í kvöld eða á morgun með myndum af herlegheitunum! 
 
Þangað til næst kids!
Ykkar, Joe 
 
 
 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 13:33:59 / johanna

Loksins loksins!!!

Jæja, það hlaut að koma að því! Loksins eru myndirnar komnar inn ;) Ætlaði að gera þetta í gær en þegar ég nennti að vakna þá þurfti ég nú bara að fara að drífa mig í fermingu hjá honum Andra frænda mínum þar sem var rosa góður matur, og síðan beint á Argentínu með fjölskyldunni hans Darra í tilefni af afmæli hans síðasta mánudag og þar var líka rosa góður matur...enda var ég rosa södd þegar ég kom heim og þá fór ég nú bara fljótlega að sofa svo það varð ekkert úr því að setja þessar myndir á netið...

En nú eru þær allavega komnar og eru þetta fimm myndapakkar, hver öðrum skemmtilegri ;)

Fyrst eru fiðluballsmyndirnar

Ég og Darri hress á fiðluballinu ;)

Síðan var það matarboðið hjá honum Dabba


Ég og Dabbi hress                Dagur að flippa                       Svenni mongó

Eftir matarboðið hjá Dabba var svo afmæli hjá Elínu

Ása, Elín og ég                      Ása og Rakel sætar               Elín og Ellý hressar

Svo var bara partýhelgi núna um helgina! Á föstudaginn hélt Móa upp á afmælið sitt með stæl! Svaka flottar veitingar, ávextir og grænmeti með tilheyrandi ídýfum og snakk og fleira. Svo var hún líka með mjög góða bollu :) Rosa skemmtilegt ammli og allir í stuði ;)


Bollan góða                                      Afmælisbarnið og ég

Á laugardeginum var svo afmælispartý hjá Darra og þar var svaka fjör! ;) Veitingar frá Nings og svaka mikið áfengi og var afgangur af öllu þannig að þeir sem vilja koma í afgangspartý! ;)


Afmælisbarnið hresst!       Strákarnir úr körfunni mættu      Ég og Darri sinn

Semsagt, mjög skemmtileg helgi! ;)

Restina af myndunum getið þið svo séð á nýju myndasíðunni minni, en hún er:

http://picasaweb.google.com/joagulladottir

og athugið að albúmin raðast þannig að það nýjasta kemur efst!

Enjoy krakkar mínir!

Ykkar, Joe


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 19:28:55 / johanna

Myndir...bráðum...

Hey kids...bara smá innskot hérna...vildi bara láta ykkur vita að ég er sko að vinna í nýrri myndasíðu en ég er samt að hugsa um að gera hana ekki public fyrr en ég verð búin að setja inn myndir helgarinnar líka, þannig að á sunnudaginn verður kominn inn góður myndaskammtur fyrir ykkur að skoða ef einhver vill taka sér pásu frá lærdómi eða öðrum sunnudagsleiðindum ;) þ.á.m. myndir frá fiðluballi, matarboði hjá Dabba, afmæli hjá Elínu, og síðan úr afmælum hjá Móu og Darra sem verða einmitt núna um helgina :D gaman gaman :D

 

   Þangað til næst! Joe 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 09:59:34 / johanna

Jæja...

Jæja krakkar mínir! Er þetta ekki bara komið gott? Á maður ekki bara að fara að hætta þessu rugli? Nei...ég held nú ekki! Gefst ekki svona auðveldlega upp þar sem ég er nú eina eftirlifandi ostran!

Ýmislegt búið að vera á döfinni hjá mér síðan síðast. Fór í matarboð til Dabba á föstudaginn. Það var rosalega huggulegt, 3 rétta máltíð, allt rosalega gott og að sjálfsögðu flæddi áfengið útum allt...takk fyrir mig Dabbi ;). Síðan tók ég leigubíl frá breiðholtinu út á nes þar sem var afmæli hjá henni Elínu sólargeisla! 3000 kall takk fyrir! En þar sem það snjóaði ótrúlega mikið þá var leigarinn hálftíma á leiðinni, og ég var alein! Í risa leigubíl! og 3000 krónum fátækari!! Mér var svo sem alveg sama á þeim tímapunkti 8) en ég væri alveg til í að eiga þennan pening núna 8| En allavega það var rosa gaman hjá Elínu þó ég hafi bara getað stoppað í klukkutíma áður en allir fóru í bæinn...skelli inn myndum bráðum, vonandi í kvöld ;)

Svo daginn eftir tók við verklegur tími í lífrænni efnafræði KLUKKAN NÍU um morguninn!! En þetta er mesti höfuðverkjaframleiðslutími sem til er!!! enda var ég svona frekar búin á því eftir hann! Um kvöldið fór ég svo í matarboð hjá Ellý sín (former oister) og við stelpurnar fengum að sjá svaka flott slideshow með myndum frá Ghana, svo vorum við líka vígðar til kvendóms ;) (smá einka hérna ;)).

Í gær átti Darri minn afmæli!

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ DARRI MINN!!!

orðinn 20 ára strákurinn! Svo ég tók mér smá frí frá öllum lærdóm í gær og við höfðum það bara huggulegt!

Þess vegna var ég mætt hingað upp á bókhlöðu fyrir allar aldir til að reyna að vinna upp gærdaginn en ég held ég sé barasta búin að klára allt súrefnið hérna á Hlöðunni því ég er búin að geispa svo mikið seinasta klukkutímann!!!

    Jæja...Onwards and upwards!!!

          Síjú aránd beibs!

                Kv.Joe

 

P.S er geispa skrifað með i?? eða er það með y??? mikið búin að pæla í þessu sko... 


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 14:21:19 / johanna

VÓVÓVÓ!!!

Whats goin on in the kitchen!?!?! Næstum því komnar tvær vikur síðan ég bloggaði síðast :S ekki nógu gott sko!!! En það er nú líka bara búið að vera nóg að gera sko!

Ellý kom heim fyrir rúmri viku síðan og ótrúlega gaman að sjá hana aftur! Hún er að sjálfsögðu ótrúlega brún og hefur verið farin að falla alveg inní hópinn þarna í Ghana, fyrir utan náttúrulega ljósa hárið ;)

Annars er lítið búið að gerast, nema ég fór á Fiðluball MR með Darra um daginn, dansaði samt mest lítið við hann ;) en mikið við vini hans, ég var víst bara boðin upp í bekknum ;) :lol:  Það var rosalega gaman að fara á þetta aftur, samt soldið örðuvísi stemmning en þegar maður var með bekknum sínum....ég skelli kannski inn nokkrum myndum seinna í dag eða á morgun.

 Hvar haldið þið annars að ég sé núna?? Jújú, mikið rétt, ég er á Hlöðuskans! Sit hérna og les um ensím, gæti ekki verið skemmtilegra! Sérstaklega þegar sólargeislarnir skína inn um gluggann og kalla á mig að koma út 8| Vá ég dey!  Jæja...svona er víst lífið...get bara ekki beðið eftir sumrinu! úff

    Jæja, thats all folks!

     Ykkar Joe


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 38638
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti